Kröfu Glitnis hafnað

Kröfum Glitnis banka, um að 9.500 milljóna kröfu hans, í Þrotabú Fons hf, verði viðurkenndar sem almennar kröfur, var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Heildarkröfur Glitnisbanka í þrotabú Fons námu hátt í 24 milljörðum. Sumarið 2009 hafnaði skiptastjóri þrotabúsins tveimur kröfum Glitnis banka. Ástæðan ar sú að vafi léki á um hvort  Pálmi Haraldsson, fyrrum framkvæmdastjóri Fons og Guðný H. Reimarsdóttir  fyrrum fjármálastjóri Fons hefðu haft nægilegt umboð til að gera ákveðna afleiðusamninga og skuldbinda félagið. 

Héraðsdómur fjallaði um hvort höfnun skiptastjóra hafi verið réttmæt. Segir í dómnum að í almennum skilmálum vegna viðskipta Fons og Glitnis hafi Glitnir gert kröfu um að stjórn Fons undirriti skilmála og umboð til starfsmanna. Það var ekki gert og því er kröfum Glitnis banka hafnað. Glitni er gert að greiða þrotabúi Fons, 800 þúsund krónur í málskostnað. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku