Króatar unnu bronsið á EM

Spánverjar og Króatar keppa um bronsið á Evórpumótinu

Króatar unnu Spánverja 31-27 í leik um þriðja sætið á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu í dag.

Króatar höfðu þriggja til fjögurra marka forystu nær allan fyrri hálfleikinn en Spánverjum tókst að minnka muninn í eitt mark rétt fyrir leikhlé og staðan því 13-12 í hálfleik Króötum í vil. Króatar náðu aftur upp þriggja til fjögurra marka forystu í síðari hálfleik og unnu að lokum fjögurra marka sigur 31-27.

Króatar eru því bronshafar á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu árið 2012.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku