Króatar sigruðu Frakka

Króatar lögðu, heims- Evrópu- og Ólympíumeistara Frakka á EM í kvöld

Króatar unnu Frakka með sjö marka mun 29-22 í öðrum leik dagsins í milliriðli tvö á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu.

Leikurinn var jafn og spennandi framanaf en Króatar sigu framúr um miðbik síðari hálfleiks og lönduðu öruggum sjö marka sigri 29-22.

Króatar, sem nú eru í öðru sæti milliriðils tvö með sex stig, eiga góða möguleika á að komast í undanúrslitin en þeir leika gegn Ungverjum í lokaumferð milliriðilsins á morgun. Ljóst er að Frakkar munu ekki verja Evrópumeistaratitilinn því liðið hefur nú tvö stig og á ekki möguleika á að komast upp úr milliriðlinum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku