Kristján Örn hættur með landsliðinu

Kristján Örn Sigurðsson lék sinn síðasta landsleik gegn Portúgal.

Varnarmaðurinn Kristján Örn Sigurðsson hefur lagt landsliðsskóna á hilluna og mun ekki gefa kost á sér í fleiri landsleiki í knattspyrnu fyrir Ísland.

Kristján segir þetta í samtali við fotbolta.net og segir þar að ákvörðunin hafi verið erfið. Kristján sem er 32 ára á að baki 53 A-landsleiki og skoraði 4 mörk fyrir landsliðið. Hann segir ákvörðunina ekki hafa neitt með það að gera að nýr þjálfari sé tekinn við íslenska landsliðinu, heldur hafi þessi tímapunktur bara verið góður.

Kristján leikur með Hönefoss í Noregi, en liðið leikur í næstefstu deild Noregs.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku