Kristallshöllin í byggingu
Kristalshöllin í Bakú í Aserbaídsjan verður miðpunktur Eurovison söngvakeppninnar á næsta ári. Höllin, sem á að rúma 25 þúsund áhorfendur, er enn mjög langt frá því að vera tilbúin en átta mánuðir eru nú í keppnina.
Höllin verður byggð á uppfyllingu við höfnina í Baku en aserski sjóherinn er með aðalstöðvar sínar í næsta nágrenni. Talsverðar umræður urðu um staðarvalið en þýskt fyrirtæki, Alpine, sér um að byggja höllina. Þar á bæ segja menn nægan tíma til stefnu, Alpine hafi oft skilað stærri og flóknari verkum á skemmri tíma en átta mánuðum og ekki þurfi að hafa neinar áhyggjur af því að húsið verði ekki tilbúið þegar söngfuglarnir eiga að hefja upp raust sína seinni partinn í maí.
Engar teikningar af höllinni hafa enn verið birtar og því lítið vitað um hvernig hún kemur til með að líta út. Ekki ætti skortur á verkkunnáttu að standa framkvæmdunum fyrir þrifum því óvíða hefur jafn mikið verið byggt á undanförnum árum og í Baku. Í borginni eru taldar vera um það bil 15 þúsund fullgerðar, en mannlausar íbúðir, og annað eins af ókláruðum íbúðum.
Í nágrenni tónlistarhallarinnar tilvonandi er hæsta flaggstöng veraldar, 162 metra há. Fáninn er sömuleiðis sagður sá stærsti í heimi enda enginn smábleðill, vegur 350 kíló, er 70 metrar á annan veginn og 35 á hinn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







