KR vann Njarðvík suður með sjó

KR-ingar unnu Njarðvíkinga á útivelli í kvöld - Mynd: Eva Björk

Heil umferð var í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld.

Fjölnir vann Tindastól 106-87 á heimavelli sínum í Grafarvogi. Nathan Walkup skoraði 35 stig og tók 12 fráköst fyrir Fjölni en Þröstur Leó Jóhannsson var með 23 stig fyrir Tindastól og þeir Maurice Miller og Svavar Atli Birgisson 14 stig hvor auk þess sem Miller tók 9 fráköst.

Keflavík sigraði Val 98-76 suður með sjó. Kristoffer Douse skoraði 19 stig fyrir Keflavík og tók 4 fráköst og Jarryd Cole var með 13 stig og 9 fráköst en Ragnar Gylfason skoraði 16 stig fyrir Val og þeir Austin Magnus Bracey og Hamid Dicko 12 stig hvor.

Stjarnan lagði Hauka 81-74 í Garðabæ. Renato Lindmets var atkvæðamestur í liði Stjörnunnar með 25 stig og 12 fráköst en Hayward Fain skoraði 19 stig og tók 5 fráköst fyrir Hauka.

KR vann Njarðvík 98-88 á útivelli. Travis Holmes var með 27 stig og 5 fráköst fyrir Njarðvík og Cameron Echols 23 stig og 10 fráköst en Dejan Sencanski skoraði 21 stig fyrir KR og tók 6 fráköst.

Snæfell sigraði Þór Þorlákshöfn 93-86 á heimavelli sínum í Stykkishólmi. Marquis Sheldon Hall skoraði 24 stig fyrir heimamenn og Pálmi Freyr Sigurgeirsson var með 15 stig og 9 fráköst en Darrin Govens skoraði 27 stig og tók 9 fráköst fyrir Þór Þorlákshöfn og  Matthew James Hairston 20 stig og 21 frákast.

Grindavík vann nauman sigur á ÍR 90-89 í Breiðholti. Nemanja Sovic skoraði 24 stig fyrir ÍR og tók 6 fráköst en J'Nathan Bullock átti stórleik fyrir Grindavík og skoraði 51 stig og tók 14 fráköst.

Grindavík er efst í deildinni með 26 stig en Stjarnan og Keflavík koma næst með 20 stig. KR er með 18 stig í fjórða sæti og þá Snæfell og Þór Þorlákshöfn með 16 stig. ÍR, Fjölnir, Tindastóll og Njarðvík eru öll með 12 stig, Haukar í ellefta sæti með 4 stig en Valur er í tólfta og neðsta sæti án stiga.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku