KR tapaði á Selfossi
Fyrst birt: 02.09.2012 21:54, Síðast uppfært: 02.09.2012 21:54

KR-ingar eru nú sjö stigum á eftir toppliði FH sem á leik til góða - Mynd: FH
Þrír leikir voru á dagskrá í 18. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í kvöld.
ÍBV og ÍA gerðu markalaust jafntefli í Vestmannaeyjum.
Stjarnan sigraði Val 2-0 á Hlíðarenda. Gunnar Örn Jónsson og Kennie Chopart skoruðu fyrir Stjörnuna.
Þá vann Selfoss 1-0 heimasigur á KR. Jón Daði Böðvarsson gerði mark Selfoss í síðari hálfleik.
Umferðinni lýkur með þremur leikjum á morgun. FH fær Keflavík í heimsókn í Kaplakrika og geta FH-ingar með sigri náð tíu stiga forskoti á toppi deildarinnar. Þá tekur Grindavík á móti Breiðablik og Fram mætir Fylki í Laugardalnum.
.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













