KR sigraði Hauka í Vesturbænum

KR-konur unnu Hauka í kvöld - Mynd; Eva Björk

Tuttugasta umferð úrvalsdeildar kvenna hófst í kvöld með leik KR og Hauka í Vesturbænum en það voru heimakonur í KR sem unnu 18 stiga sigur 72-54.

Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 19 stig fyrir KR og tók 13 fráköst en Jence Ann Rhoads var með 18 stig og 11 fráköst fyrir Hauka.

Umferðinni lýkur með þremur leikjum annað kvöld en þá mætast Hamar og Valur í Hveragerði, Njarðvík tekur á móti Fjölni og Snæfell fær Keflavík í heimsókn í Stykkishólm.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku