KR og Haukar unnu í kvöld

Haukar unnu Keflavík á heimavelli í kvöld - Mynd: Eva Björk
Fimmtándu umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik lauk í kvöld með tveimur leikjum.
KR vann Stjörnuna með tveggja stiga mun 89-87 í Vesturbæ. Joshua Brown skoraði 21 stig fyrir KR og tók 7 fráköst en Justin Shouse var með 28 stig og 4 fráköst fyrir Stjörnuna.
Þá unnu Haukar tveggja stiga sigur á Keflavík 73-71 á Ásvöllum. Emil Barja skoraði 23 stig og tók 5 fráköst fyrir Hauka en Jarryd Cole var atkvæðamestur í liði Keflavíkur með 22 stig og 7 fráköst.
Grindavík er efst í deildinni með 28 stig og hefur nú átta stiga forystu á KR, Stjörnuna og Keflavík sem öll hafa 20 stig. Snæfell og Þór Þorlákshöfn eru með 18 stig og Fjölnir með 14 stig, ÍR, Tindastóll og Njarðvík hafa öll 12 stig, Haukar eru í næstneðsta sæti með 6 stig og Valur á botni deildarinnar án stiga.
Þrír leikir eru á sunnudaginn kemur en þá tekur Fjölnir á móti Haukum í Grafarvogi, Stjarnan og Þór Þorlákshöfn mætast í Garðabæ og Njarðvík fær Snæfell í heimsókn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







