Kötturinn sleginn úr tunnunni

Elísa Björt Pálsdóttir sló köttinn úr tunnunni.

Kötturinn var sleginn úr tunnunni á Akureyri í dag venju samkvæmt. Að þessu sinni hafði tunnunni verið komið fyrir á flötinni fyrir neðan leikhúsið og sáu starfsmenn Norðurorku um að aðstoða börnin við að slá í tunnunna.

Óvenju stuttan tíma tók að brjóta tunnunna í ár eða innan við 15 mínútur. Kúrekastelpan Elísa Björt Pálsdóttir sló botninn úr tunnunni og hlaut hún nafnbótina tunnukóngur ársins, en Óttar Finnson var valinn kattarkóngur ársins. Fengu þau leikhúsmiða í verðlaun.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku