Kosið um sameiningu 20. október
Fyrst birt: 22.06.2012 05:28, Síðast uppfært: 22.06.2012 05:28

Ákveðið hefur verið að atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélagana Garðabæjar og Álftaness fari fram laugardaginn 20. október 2012 samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga.
Þetta var ákveðið á bæjarstjórnarfundum Álftaness og Garðabæjar í gær.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














