Kornuppskeran með minnsta móti

Kornuppskera var með minnsta móti á landinu í sumar og nær algjör uppskerubrestur varð í kornrækt á Héraði. Bóndi í Vallanesi segir að skjólbelti sem hann ræktaði við akrana, hafi bjargað því sem bjargað varð.
Þó komið sé fram í endaðan nóvember er ennþá uppskerutími í Vallanesi. Framan af vetri hefur verið einmunatíð og þegar okkur ber að garði er verið að skera grænkál sem sprettur enn. Veðráttan var líka öfugsnúin í sumar og til vitnis um það eru stykki úr kornökrum sem aldrei gáfu neina nothæfa uppskeru.
Eymundur Magnússon, bóndi í Vallanesi, segir að síðasta sumar hafi verið með eindæmum lélegt. Kaldasta sumarið síðan hann byrjaði að búa sem var árið 1979. Til marks um hvað sumarið hafi verið lélegt þá hafi vorað snemma. Hann hafi getað sáð korninu um páskana en samt hafi uppskeran verið lélegri en nokkru sinni áður.
Í þrjá áratugi hefur Eymundur ræktað skjólbelti við akrana og það bjargaði miklu. Hann segir að hann sé kannski búinn að flytja Vallanes töluvert sunnar á hnöttinn. Það megi segja að þessi skjólbelti sem hann hafi byrjað að planta 1983 hafi verið að skila sér núna því þegar hann sé kominn 60 metra frá beltunum þá hætti að koma korn í tankinn. Þannig að snjóbeltin hafi skilað því korni sem hann hafi fengið.
Uppskerubrestur sumarsins hvetur bændur til að gera sem mest úr takmarkaðri uppskeru. Fullunar vörur gefa meira af sér en eintóm hráefnissala. Það nýjasta er vöfflu- og lummublanda úr byggmjöli. Eymundur segir að hann sé búinn að baka lummur í mörg ár en það fyndna sé að þegar hann hafi farið að búa til vöruna þá fyrst hafi hann farið að mæla innihaldið. Þetta sé nú tilbúin vara sem allir geti gert heima hjá sér. Eymundur segir kornrækt á Íslandi samkeppnishæfa við innflutt korn. Íslenska kornið sé á viðráðanlegu verði fyrir alla.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







