Kópavogur: Samkomulag í sjónmáli

Í Kópavogi. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.

Formlegar meirihlutaviðræður sjálfstæðismanna, framsóknarmanna og fulltrúa Y-lista Kópavogsbúa halda áfram síðdegis í dag. Oddvitar þessara flokka hittust tvívegis um helgina.

Þeir bæjarfulltrúar sem fréttastofa ræddi við í morgun segja að viðræðurnar gangi vel og vænta þess að þeim ljúki með samkomulagi í dag, enda liggi málefnasamningur nokkuð ljós fyrir. Ekki hafi verið gengið frá því hver taki við stöðu bæjarstjóra. Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna hefur verið orðaður við stöðuna, en Y-listi Kópavogsbúa leggur mikla áherslu á að bæjarstjórinn sé faglega ráðinn og ópólitískur. Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri er sagður styðja þá tillögu. Nú eru um þrjár vikur liðnar síðan slitnaði upp úr meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn Kópavogs.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku