Kona í fangelsi fyrir tíðar símhringingar

Lögregla fór að heimili konu á höfuðborgarsvæðinu laust fyrir klukkan fjögur í nótt og handtók hana vegna fjölda símtala sem hún hafði hringt næsta klukkutímann á undan.
Konan hringdi um það bil 200 sinnum í Neyðarlínuna á einni klukkustund, samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn Neyðarlínunnar höfðu því samband við lögreglu svo tryggja mætti vinnufrið og gera þeim kleift að svara þeim símtölum þar sem um raunverulega neyð væri að ræða eða þörf fyrir aðstoð. Lögreglumenn handtóku konuna og fluttu hana í fangaklefa.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem lögregla hefur þurft að hafa afskipti af fólki vegna tíðra símhringinga í Neyðarlínu. Í október í fyrra handtók lögregla ölvaðan karlmann á fertugsaldri og flutti í fangaklefa eftir að hann hringdi 50 sinnum í Neyðarlínuna á skömmum tíma.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














