Komið að þolmörkum
Ferðaþjónustuaðilar í Skaftárhreppi hafa sent innanríkisráðherra yfirlýsingu, þar sem þeir láta í ljósi miklar áhyggjur af rofi hringvegarins. Þá sé einnig ástæða til að hafa áhyggjur af neyðarflutningum af svæðinu, ef til frekari hamfara skyldi koma. Ferðaþjónustuaðilarnir krefjast þess að unnið verði allan sólarhringinn að bráðabirgðabrú og strax verði komið með nothæfar lausnir sem nýtist smábílum og neyðarflutningum, sem ekki sé hægt að beina inn á fjallvegi. Þá verði vinna hafin strax við að bæta vegslóðann á Fjallabaksleið nyrðri.
Jafnframt eru settar fram þrjár tillögur að bráðabirgðalausnum til að greiða fyrir umferð um svæðið þar til bráðabirgðabrúin verði tilbúin.
Lagt er til að bílar verði ferjaðir yfir Múlakvísl og tæki fengin til verksins þegar í stað. Þá verði Fjallabaksleið nyrðri haldið við allan sólarhringinn með vegheflum sem yrðu staðsettir á svæðinu. Og að ræsishólkar verði lagðir í farveg Múlakvíslar, ef það mætti verða til að flýta fyrir akfærum vegi.
Ferðaþjónustuaðilar í Skaftárhreppi segja þolmörkum sínum náð eftir þær náttúruhamfarir sem dunið hafi á þeim undanfarið ár, það verði að opna þjóðveg 1 við fyrsta tækifæri.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







