Koma Guðjóns til Kielar staðfest

Guðjón Valur Sigurðsson gengur í raðir Kielar næsta sumar.
Forráðamenn þýska handknattleiksliðsins Kiel, hafa nú staðfest komu Guðjóns Vals Sigurðssonar til félagsins í sumar. Guðjón Valur gerir tveggja ára samning við Kiel.
Legið hefur í loftinu frá því fyrir áramót að Guðjón Valur væri á leið til Kielar. Hvorki hann né forráðamenn félagsins hafa þó viljað staðfesta það, fyrr en í dag. Klaus Elwardt framkvæmdastjóri Kielar segir í dagblaðinu Kieler Nachrichten að Guðjón sé búinn að undirrita tveggja ára samning sem gildi til vorsins 2014. Guðjón gengur þó ekki formlega í raðir félagsins fyrr en í sumar, en þá rennur samningur hans við danska liðið AG Kaupmannahöfn út. Hjá Kiel mun Guðjón hitta fyrir tvo Íslendinga, landsliðsmanninn Aron Pálmarsson og þjálfarann Alfreð Gíslason, en Alfreð þjálfaði Guðjón Val einnig hjá Gummersbach.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







