Kínverjar vilja byggja heilsuþorp

Flúðir. Mynd: Gestur Ólafsson


  • Prenta
  • Senda frétt

Kínverska fyrirtækið Smart Cities International Limited hefur ritað undir yfirlýsingu um að það hafi áhuga á að koma að fjármögnun og byggingu á heilsuþorpi á Flúðum sem fyrirtækið Flúðir Spa hefur áhuga á að byggja. Þetta kom fram á Stöð 2 í kvöld.

Árni Gunnarsson, stjórnarformaður Flúða Spa, býst við að Kínverjarnir komi fljótlega til landsins og viðræður hefjist.

Fyrirtækið Smart Cities International er einn af leiðandi verktökum í Kína á sviði vistvænna og sjálfbærra verkefna. Fyrirtækið starfar í náinni samvinnu við kínversk stjórnvöld. Starfsmenn þess eru um átta þúsund talsins. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku