Kettir fylgja fleirum en Liverpool
Fyrst birt: 09.02.2012 14:38, Síðast uppfært: 09.02.2012 14:38

Kötturinn á Anfield.
Anfield kötturinn svokallaði er orðinn frægur um allan heim, eftir að hann gerði sig heimakominn á Anfield, heimavelli Liverpool, þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á mánudag. Köttur alls ekki ósvipaður Anfield kettinum sást bregða fyrir á Fylkisvelli 2010.
Í myndbandinu hér fyrir ofan má sjá hvernig köttur skarst í leik Fylkis og Aftureldingar í efstu deild kvenna í knattspyrnu í lok sumars 2010. Myndbrotið hér að ofan var sýnt í íþróttaþættinum Sportinu (nú 360 gráður) í október 2010.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







