Keppni í B-riðli á EM lýkur í kvöld

Þjóðverjar eru efstir í riðlinum með 6 stig eftir tvo sigurleiki
Keppni lýkur í B-riðli á Evrópumótinu í knattspyrnu í kvöld. Annars vegar mætast Portúgal og Holland en hins vegar Þýskaland og Danmörk.
Fyrir leiki kvöldsins er Þýskaland efst í riðlinum með 6 stig eftir tvo sigurleiki, Portúgal og Danmörk hafa 3 stig en Holland hefur tapað báðum leikjum sínum á mótinu til þessa og er án stiga.
Leikur Portúgala og Hollendinga verður sýndur beint á aukarásinni RÚV íþróttir á rás 199 hjá Símanum og 196 hjá Vodafone (adsl og Digital Ísland) og á www.ruv.is/beint og hefst útsending klukkan 18.20. Leikur Þjóðverja og Dana verður í beinni útsendingu á RÚV og RÚV HD og hefst hann klukkan 18.45. Báðum leikjum verða gerð góð skil í EM stofu og EM kvöldi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is








