Kennir börnum á hunda

Þeim virtist lynda vel, hundinum og stúlkunni á leikskólanum Akraseli.

Hundar eru ekki vandamál. "Það eru eigendur þeirra sem eru vandamálið, ef slíkt kemur upp varðandi hundahald," segir formaður Dýraverndunarráðs Ísland. ýmislegt er reynt til að koma í veg fyrir að vaxandi hundahald, sérstaklega í þéttbýli, leiði til árekstra.

Það síðasta er framtak dýraeftirlitsmannsins á Akranesi sem fer með hundana sína í heimsókn á leikskóla bæjarins til að kenna börnum að umgangast dýrin.

Vertu vinur Landans á Facebook

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku