Keflavík vann Tindastól úti

Keflvíkingar unnu Tindastól fyrir norðan í kvöld - Mynd: Eva Björk

Þrettándu umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik lauk í kvöld með þremur leikjum.

Stjarnan sigraði Val 96-71 á Hlíðarenda. Ragnar Gylfason skoraði 14 stig fyrir Val en Renato Lindmets var með 20 stig og 7 fráköst fyrir Stjörnuna.

Keflavík gerði góða ferð norður á Sauðárkrók og lagði Tindastól 91-72. Maurice Miller og Friðrik Hreinsson skoruðu 15 stig hvor fyrir heimamenn en Magnús Þór Gunnarsson var atkvæðamestur í liði Keflavíkur með 25 stig og 10 fráköst.

Þá vann Grindavík lið Fjölnis 107-73 á heimavelli. J'Nathan Bullock var með 26 stig og 17 fráköst fyrir Grindvíkinga en Björgvin Hafþór Ríkharðsson skoraði 19 stig og tók 4 fráköst fyrir Fjölni.

Grindavík er efst í deildinni með 24 stig en Stjarnan og Keflavík hafa 18 stig. KR og Þór Þorlákshöfn eru með 16 stig, Snæfell með 14 stig, þá næst ÍR, Tindastóll og Njarðvík með 12 stig, Fjölnir með 10 stig, Haukar með 4 stig og Valur í neðsta sæti án stiga.

Heil umferð fer fram fimmtudaginn 2. febrúar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku