KA/Þór úr botnsætinu - sigraði HK

HK tapaði fyrir KA/Þór fyrir norðan í dag - Mynd: Eva Björk

Þrír leikir fóru fram í úrvalsdeild kvenna í handknattleik í kvöld.

ÍBV tapaði fyrir Val með sjö marka mun 39-32 í Vestmannaeyjum en gestirnir höfðu yfir í hálfleik 21-18. Grigore Ggorgata var markahæst í liði ÍBV með tíu mörk og Þorgerður Anna Atladóttir skoraði einnig tíu mörk fyrir Val.

Grótta vann Hauka með fimm marka mun 24-19 á heimavelli sínum á Seltjarnarnesi en Grótta hafði fjögurra marka forskot í hálfleik 12-8. Sunna María Einarsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Gróttu í leiknum en Marija Gedroit var markahæst í liði Hauka með sex mörk.

Þá tók KA/Þór á móti HK fyrir norðan og voru það heimakonur sem unnu óvæntan eins marks sigur 23-22 eftir að hafa verið með þriggja marka forystu í hálfleik 11-8. Kolbrún Einarsdóttir skoraði sjö mörk fyrir norðanstúlkur en Brynja Magnúsdóttir skoraði mest fyrir HK eða fimm mörk.

Nú þegar tíu umferðum er lokið eru Fram og Valur jöfn í efstu tveimur sætum deildarinnar með 18 stig og HK og ÍBV jöfn í þriðja sæti með 12 stig. Stjarnan er í fimmta sæti með 10 stig, Haukar með 6 stig og Grótta með 5 stig, KA/Þór er komið úr botnsætinu og í það næstneðsta með 4 stig og FH er nú í neðsta sæti með 3 stig.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku