Kári Steinn hafnaði í 42. sæti
Fyrst birt: 12.08.2012 12:27, Síðast uppfært: 12.08.2012 12:41

Kári Steinn Karlsson hafnaði í 42. sæti í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í Lundúnum í dag en 105 keppendur hófu hlaupið. Kári Steinn kom í mark á tímanum 2:18,47 klukkustundum en Íslandsmet hans í vegalengdinni er 2:17,12 sett í Berlín í fyrra.
Kári Steinn er fyrstur íslenskra karlmanna til að keppa í maraþonhlaupi á Ólympíuleikum en Martha Ernstdóttir keppti í kvennaflokki á leikunum í Sidney 2000.
Stephen Kiprotich frá Úganda kom fyrstur í mark í hlaupinu í dag á tímanum 2:08,01 klukkustundum og fangaði Ólympíugullinu, Abel Kirui frá Kenía varð annar á 2:08,27 klukkustundum og landi hans Wilson Kiprotich hreppti bronsið á tímanum 2:09,37 klukkustundum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













