Kári Kristján með sigurmark Wetzlar

Kári Kristján í leik með Wetzlar fyrr í vetur

Lærissveinar Guðmundar Guðmundssonar í Rhein-Neckar Löwen unnu sex marka sigur á Balingen-Weilstetten 30-24 í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik sem hófst aftur í kvöld eftir hlé vegna Evrópumótsins. Róbert Gunnarsson var ekki á meðal markaskora Löwen í leiknum.

Lið Füchse Berlin, undir stjórn Dags Sigurðssonar, tapaði naumlega fyrir Hamburg 24-23. Alexander Petersson var ekki með Berlínarliðinu vegna meiðsla.

Kári Kristján Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Wetzlar sem vann Göppingen með einu marki 26-25 en annað mark Kára reyndist sigurmarkið í leiknum.

Björgvin Páll Gústafsson og félagar í Magdeburg höfðu betur gegn TuS N-Lübbecke 28-23 og lið Sverre Jakobssonar, Großwallstadt, tapaði fyrir Gummersbach 33-32.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku