Kæru vísað frá

Leik Hauka og Njarðvíkur hefur verið frestað vegna kærunnar

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur kærði í gær framkvæmd leik liðsins gegn Njarðvík í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna sem fram fór um þarsíðustu helgi í Njarðvík sem vann leikinn, 78-72. Kærunni var vísað frá vegna formgalla.

Keflvíkingum þótti brotið á sér eftir tapið gegn grönnum sínum og töldu mistök hafa átt sér stað á ritaraborðinu meðan á leiknum stóð.  Þeir lögðu því í gær inn kæru sem Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambandsins tók fyrir í gær.  Þar var kærunni vísað frá vegna formgalla á henni, en Keflvíkingur hafa þrjá sólarhringa til þess að skila inn nýrri og endurbættri kæru.  Á meðan kæruferlið stendur yfir er ekki hægt að setja á leik Njarðvíkur og Hauka í undanúrslitunum sem fyrirhugaður var um næstu helgi og honum hefur því verið frestað.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku