,,Jörðin logaði í kringum mig"

Íbúðarhúsið Hamar á Breiðdalsvík. Mynd: Þórunn Björg.
Í morgun voru sjötíu ár frá því að þýsk flugvél skaut á íbúðarhúsið Hamar á Breiðdalsvík. Talið er að Þjóðverjum hafi þótt húsið grunsamlegt en stöplar standa upp úr þaki þess svo það minnir á kastalavirki.
Birgir Einarsson starfaði lengi sem kennari og skólastjóri á Breiðdalsvík og man vel eftir stríðsárunum en hann var þá unglingur. Hann fylgdist gjarnan með ferðum flugvéla sem flestar voru eftirlitsvélar frá Reyðarfirði þar sem hersetulið hafði bækistöð. Hann man sérstaklega eftir góðviðrisdegi fyrir sjötíu árum en hann var þá fjórtán ára. Þetta var rétt fyrir klukkan tíu um morguninn, vörubíll sat fastur í læk og var mikið krakkager í kringum bílinn. Þá sá hann flugvél koma af hafi.
„Svo merkilegt sem það var þá var svartur reykur aftan úr henni. Og þetta þótti mér markilegt og fylgdist með henni og sjálfsagt allir sem voru þarna staddir,“ segir Birgir.
Íbúar á Breiðdalsvík vissu ekki að þremur dögum áður höfðu Þjóðverjar tekið loftmynd af þorpinu. Birgir telur að þeim hafi þótt húsið Hamar grunsamlegt, enda ferkantað með flötu þaki og stöplum upp úr þakinu svo það minnir á kastalavirki. Allavega tók flugvélin stefnuna á þorpið og áhugi Birgis fyrir flugvélum breyttist skyndilega í ótta.
Fóstursystir Birgis fékk flís úr kúlu í öxlina
„Svo veit ég ekki fyrr til en jörðin bókstaflega logar í kring um mig. Svoleiðis að ég hljóp inn. Slapp inn. Og það fylltist allt af kolsvörtum reyk. Hefði hún tekið svona eins og hálfan meter beygjuna þá hefði maður ekki verið til frásagnar. En fóstursystir mín var heima og úti þegar hún byrjaði eldhafið. Og hún fékk flís úr kúlu í öxlina,“ segir Birgir.
Vélin skaut bæði sprengikúlum og heilum kúlum. Sjö slíkar komu í vesturstafninn á húsinu og fór ein í gegnum þykkan vegginn. „Og hún festist inni í brúninni inni í herberginu. Og ég geymi hana til minningar og hún er líklega dýrmætasti gripur sem ég á í minni eigu.“
Skaut líka á vita og báta
Vélin skaut líka aftur úr sér meðan hún fjarlægðist og komu tvær kúlur í austurstafninn rétt við glugga þar sem fólkið var fyrir innan. Járnklæðning á húsinu Ás sem stendur um 40 metra í burtu var eins og gatasigti eftir kúlnabrot. Vélin hélt á haf út en skaut á Kambanesvita á leiðinni og litla vélbáta. Birgir veit ekki til þess að neinn hafi særst þar en menn óttuðust flugvélar lengi á eftir. „Árin á eftir þá hlupu menn fyrir steina og í felur þegar þeir heyrðu í flugvél. Þetta gekk nú svona.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














