Sigurlaug Hjaltadóttir er jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hún segir að skjálftarnir í nótt hafi verið aðeins stærri en skjálftarnir í gærmorgun. Hviðan hafi verið svipuð og staðið í tæpan klukkutíma. Kvikuflæði virðist enn vera í fullum gangi og hrinan virðist vera innskotahrina. Ekki sé þekkt hvernig gos byrja í Eyjafjallajökli og verið geti að kvikuhreyfingar haldi áfram í einhverjar vikur. Það sé ekki vitað en áfram verði fylgst með jöklinum.
Almannavarnir hafa ekki aflétt óvissustigi vegna Eyjafjallajökuls.
frettir@ruv.is