Jón Gnarr hirti sorp í Árbæ

Jón Gnarr kynnti sér störf sorphirðumanna. Mynd fengin af vef Reykjavíkurborgar.

Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, fór eldsnemma á fætur í morgun, klæddi sig í einkennisbúning sorphirðumanna og kynnti sér störf þeirra.

Frá þessu er sagt á vef Reykjavíkurborgar. Hann mætti klukkan sex í höfuðstöðvar sorphirðunnar í Gufunesi til að heilsa upp á mannskapinn sem kemur þá til vinnu.

Eftir að hafa klætt sig var förinni heitið í Kvíslarhverfið í Árbæ. Þar gekk borgarstjórinn um í rúma klukkustund og hirti sorp með vöskum flokki sorphirðufólks.

Jón sagði þetta greinilega mjög erfitt starf en það hafi komið sér á óvart hversu hratt og snurðulaust það gangi fyrir sig.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku