Jón Ásgeir hafnar ábyrgð á tapi

Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi aðaleigandi Baugs hafnar því alfarið að bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna á Glitni.Hann hefur sent frá sér yfirlýsingu til að bregðast við því sem fram kemur í lífeyrissjóðaskýrslunni um að Baugur Group hafi borið á byrgð á 77 milljarða tapi sjóðanna.

Í skýrslunni sé því haldið fram að Baugur beri ábyrgð á tapinu í gegnum beina og óbeina eignarhluti. Jón segir að sér finnist miður að sjóðirinir hafi tapað fé á lánveitngum til Baugs Group en skiptum á þrotabúi Baugs sé ekki lokið og því ekki útséð með greiðslur úr því. 

Hann fellst ekki á að hægt sé að kenna sér eða Baugi um tap sjóðanna á Glitni. Það sé meðal annars tilkomið vegna fjárfestinga fyrir 2007 þegar hann og aðilar honum tengdir höfðu engan snertiflöt við bankann. Hvorki þá né seinna hafi þeir stjórnað fjárfestingum lífeyrissjóðanna og framsetning skýrslunnar á tengslum sé villandi. 

Þá afneitar Jón Ásgeir tapi vegna Landic hf, FL group og Teymis Hf. Þó að Baugur Group hafi verið hluthafi í þeim þá hafi þau ekki verið undir meirihluta yfirrráðum hans eða Baugs Group.  Enn sé ekki ljóst hvers virði þessi fyrirtæki verði á endanum og umræða um að allt sé tapað sé ábyrgðarlaus. Forsvarsmenn lífeyrisjóðanna hafi borið ábyrgð á fjárfestingum þeirra og engir aðrir segir Jón Ásgeir. 

Honum kemur verulega á óvart að skýrsluhöfundar hafi ekki séð ástæðu til að heyra sjónarmið forsvarsmanna fyrirtækjanna sem sérstaklega eru tilgreind í skýrslunni. Í því séu vinnubrögðin söm og í rannsóknarskýrslu alþingis, sem ekki gefi að öllu leyti rétta mynd af stöðunni. Betur færi á því að menn væru kallaðir fyrir sannleiksnefnd til dæmis á alþingi og hægt væri að fylgjast með þeim í beinni útsendingu. 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Viðskipti

Tilkynna um bilaða upptöku