Jón Arnór með 12 stig í sigurleik
Fyrst birt: 05.02.2012 14:08, Síðast uppfært: 05.02.2012 14:08

Jón Arnór Stefánsson skoraði 12 stig og tók 2 fráköst fyrir CAI Zaragoza í átta stiga sigri liðsins á fyrrum liðsfélögum hans í Valencia Basket 71-63 í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag.
Þetta var þriðji sigur Zaragoza í síðustu fjórum leikjum en Jón Arnór var þriðji stigahæsti leikmaður liðsins í leiknum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







