Jólatré eins og í gamladaga
Fyrst birt: 29.12.2011 10:06, Síðast uppfært: 29.12.2011 10:06

Jólatrén getur hver skreytt eins og hann lystir.
Hjónin Edda og Hlynur á Miðhúsum við Egilsstaði smíðuðu eitt sinn gamaldags jólatré fyrir veislu sem þau héldu. Tréð vakti athygli og nú hefur uppátækið undið upp á sig því það reyndist vera eftirspurn eftir slíkum trjám.
Trén eru þannig útbúin að fólk setur þau sjálft saman og skreytir eftir eigin höfði, gjarnan með lyngi og lifandi ljósum.
Vertu vinur Landans á Facebook.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







