Jeppafólk sótt að Langjökli

Mynd: landsbjorg.is.
Björgunarsveitin OK í Borgarfirði er á leið að Langjökli til að sækja fólk sem þar er í jeppa sem situr fastur í forarvilpu. Jeppi fólksins er við rætur jökulsins.
Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorni. Tvo vel búna björgunarbíla þarf í þessa ferð svo hægt verði að flytja alla til byggða fari svo að ekki náist að losa jeppann. Þetta er í fimmta skipti á fjórum dögum sem björgunarsveitin er kölluð út til að sækja vegfarendur á Kaldadal sem virt hafa að vettugi skilti þar sem segir að vegurinn sé lokaður. Í gær var rútu með ferðamönnum komið til aðstoðar á Kaldadalsvegi en þar sat hún föst í skafli. Í hinum þremur tilfellunum var um að ræða útlendinga á fjórhjóladrifnum jepplingum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













