Jakob stigahæstur í liði Sundsvall
Fyrst birt: 03.02.2012 21:42, Síðast uppfært: 03.02.2012 21:42

Jakob Örn var stigahæstur í liði Sundsvall í kvöld eins og svo oft áður
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur með 27 stig í liði Sundsvall Dragons sem vann LF Basket 97-87 í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld. Hakob Örn tók einnig 2 fráköst fyrir liðið en Hlynur Bæringsson var með 10 stig og 8 fráköst. Pavel Ermolinskij er enn meiddur.
Logi Gunnarsson var með 7 stig og 3 fráköst fyrir Solna Vikings sem sigraði ecoÖrebro 83-74. Brynjar Þór Björnsson skoraði 8 stig og tók 1 frákast fyrir Jämtland Basket í tapi liðsins gegn Södertälje Kings. Þá tapaði lið Helga Más Magnússonar, 08 Stockholm fyrir Norrköping Dolphins 85-80 en Helgi Már skoraði 11 stig og tók 7 fráköst í leiknum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







