Jafntefli við Frakka á EM

Ísland og Frakkland gerðu jafntefli í lokaumferð milliriðils tvö á Evrópumótinu í Handknattleik í Serbíu.
Íslenska liðið hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik og náði mest sex marka forystu en staðan í leikhléi var 15-12 Íslandi í vil. Frakkar hófu síðari háfleik af miklum krafti og tókst að jafna metin og komast yfir á fyrstu tíu mínútunum. Frakkar héldu forystunni þar til þrjá mínútur voru eftir en þá tókst íslenska liðinu að jafna 28-28. Lokamínúturnar voru æsispennandi og lauk leik með sanngjörnu jafntefli 29-29.
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með fimm mörk, Þórir Ólafsson, Rúnar Kárason, Aron Pálmarsson og Róbert Gunnarsson skoruðu allir fjögur mörk, Ásgeir Örn Hallgrímsson þrjú mörk og þeir Arnór Atlason og Ólafur Bjarki Ragnarsson voru með tvö mörk hvor. Þá varði Björgvin Páll Gústavsson sautján skot í markinu og Aron Rafn Eðvarðsson fimm skot.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Ísland mætir Frökkum í dag
Guðjón Valur í þriðja sæti 





