Jafnt hjá Keflavík og Breiðabliki
Fyrst birt: 15.09.2011 20:43, Síðast uppfært: 15.09.2011 20:43
Keflavík og Breiðablik gerðu í kvöld jafntefli, 1-1 í úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Tómas Óli Garðarsson kom Blikum yfir á 19. mínútu en Jóhann Birnir Guðmundsson náði að jafna metin fyrir Keflvíkinga áður en fyrri hálfleikur rann sitt skeið með marki á 44. mínútu. Fleiri urðu mörkin þó ekki og 1-1 jafntefli því niðurstaðan.
Bæði lið hafa nú 21 stig, Keflavík í 7. sæti en Blikar í því áttunda. Keflavík á þó leik til góða gegn KR sem fer fram 22. september.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







