Ísland tapaði fyrir Spánverjum

Íslendingum tókst ekki að stöðva sigurgöngu Spánverja í dag

Íslenska landsliðið í handknattleik tapaði fyrir fyrnasterku liði Spánverja 31-26 í annarri umferð milliriðils tvö á Evrópumótinu í Serbíu en leiknum lauk fyrir skemmstu.

Spánverjar höfðu forystu frá fyrstu mínútu leiksins og voru yfir í hálfleik 17-13. Þrátt fyrir ágætan leik íslenska liðsins í síðari háfleik tókst því ekki að minnka muninn meira en í þrjú mörk. Spánverjar héldu velli og unnu öruggan fimm marka sigur.

Guðjón Valur Sigurðsson var sem fyrr markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk og Rúnar Kárason skoraði fjögur mörk. Þeir Kári Kristján Kristjánsson, Aron Pálmarsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Arnór Atlason skoruðu allir þrjú mörk, Þórir Ólafsson tvö mörk og þeir Vignir Svavarsson og Ólafur Guðmundsson eitt mark hvor. Björgvin Páll Gústavsson varði 15 skot í íslenska markinu.

Spánverjar, sem enn eru taplausir á mótinu, eru efstir í riðlinum með sjö stig eftir sigurinn en Íslendingar sem fyrr með tvö stig og eiga ekki lengur möguleika á að komast áfram í undanúrslitin. Ísland leikur gegn Frökkum á morgun kl.15.10. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV og lýst beint á Rás 2.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku