Ísland mætir Spánverjum í dag

Ísland mætir Spánverjum í öðrum leik sínum í milliriðli tvö í dag

Ísland mætir Spánverjum í annarri umferð milliriðils tvö í dag. Upphitun fyrir leik hefst með EM-stofu kl.14.45 á RÚV. Leikurinn hefst svo kl.15.10 og er sýndur í beinni útsendingu á RÚV og lýst beint á Rás 2.

Ísland á enn möguleika á því að komast í undanúrslit en til þess þarf liðið að vinna fyrnasterka Spánverja í dag og heims-Evrópu- og Ólympíumeistara Frakka á morgun auk þess að treysta á hagstæð úrslit úr öðrum leikjum í riðilinum.   

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku