Ísland mætir Hollandi í umspili HM

Íslenska liðið mætir Hollandi í tveimur umspilsleikjum fyrir HM 2013

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik leikur gegn Hollendingum í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem fram fer á Spáni í byrjun næsta árs.

Dregið var fyrir stundu í Belgrad og var Ísland í fyrsta styrkleikaflokki en Holland er í neðri styrkleikaflokkum. Liðin leika tvo leiki í júní og tryggir sigurliðið sér keppnisrétt á HM. 

Liðin sem drógust saman í umspilsleiki fyrir HM 2013:
Litháen - Pólland
Rússland - Tékkland
Slóvenía - Portúgal
Slóvakía - Hvíta-Rússland
Makedónía - Austurríki
Ungverjaland – Noregur
Ísland - Holland
Þýskaland – Bosnía Herzegovina
Svíþjóð - Svartfjallaland

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

EM, HM, Handbolti, Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku