Innanríkisráðherra í vanda

Gueant hefur valdið deilum í Frakklandi. Mynd: Nordic Photos/AFP.

Franski innanríkisráðherrann Claude Gueant á í vök að verjast vegna ummæla sem hann lét falla á fundi með hægrisinnuðum námsmönnum um helgina.

Hann sagði þá að ekki væru allir menningarheimar jafnir. Þannig væru þeir æðri sem virtu frelsi, jafnrétti og bræðralag en þeir sem sættu sig við einræði og undirokun kvenna. Sagði ráðherrann að Frakkar yrðu að standa vörð um menningu sína.

Orð ráðherrans fóru fyrir brjóstið á andstæðingum hans. Einn þingmaður sakaði Gueant um að draga fram hugmyndafræði sem hefði alið af sér fangabúðir og stjórn nasista. Því tóku flokkssystkin ráðherrans reyndar ekki þegjandi heldur gengu úr þingsal í mótmælaskyni. Gueant hefur reyndar áður valdið deilum með ummælum sínum. Í fyrra sagði hann straum innflytjenda til Frakklands valda því að mörgum Frökkum þætti sem þeir byggju ekki lengur í eigin landi. Hann hefur einnig beitt sér fyrir meiri takmörkunum á möguleikum útlendinga til að setjast að í Frakklandi.

Ummæli hans nú valda deilum þegar styttist í forsetakosningar en óvíst er hvort og þá hvaða áhrif þau hafa. Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna Gueant en aðrir telja að hann geti dregið fylgi að UMP flokknum sem ella færi til hægriöfgaflokks Le Pen.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku