Ingvar og Jónas dæma á Asíumótinu

Dómararnir Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson dæmdu í dag leik Suður-Kóreu og Japan í A-riðli á Asíumóti karla í handknattleik sem fram fer í Jeddah í Sádi-Arabíu.

Japanir, sem verða andstæðingar Íslands í forkeppni Ólympíuleikanna, töpuðu leiknum með einu marki 28-27 og höfnuðu í öðru sæti riðilsins á eftir Suður-Kóreu sem fer áfram upp úr riðlinum með fullt hús stiga.

Þetta var þriðji leikurinn sem þeir Ingvar og Jónas dæma í keppninni en þeir dæmdu fyrsta leik hennar og svo viðureign Japan og Kúveit en þeir hafa þótt standa sig vel við störf sín á mótinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku