Icelandair sektað um 80 milljónir

Hæstiréttur mildaði í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi Icelandair til að greiða 130 milljóna króna sekt fyrir að undirbjóða verð keppinautar á fargjöldum til Lundúna og Kaupmannahafnar.

Leiðrétting. Hæstiréttur sneri við dómi Héraðsdóms, sem hafði fellt niður sektargreiðslur.
Hæstiréttur taldi aðeins annað fargjaldið ólöglega lágt og lækkaði sektina í 80 milljónir.

Iceland Express hóf í febrúar 2003 að bjóða upp á flugferðir til Lundúna og Kaupmannahafnar. Mánuði áður fór Icelandair að selja fargjöld til beggja áfangastaða á netinu. Þetta voru svonefndir Vorsmellir og var verðið lægra en félagið hafði áður boðið. Iceland Express kvartaði til samkeppnisyfirvalda. Þau töldu Icelandair vera í einstakri yfirburðastöðu og bönnuðu félaginu að bjóða Vorsmellina. Ári síðar kvartaði Iceland Express aftur til samkeppnisyfirvalda vegna ódýrra fargjalda keppinautarins.

Í kjölfarið var Icelandair sektað um 190 milljónir króna vegna skaðlegrar undirverðlagningar. Málið var kært til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem taldi að Icelandair hefði verið í markaðsráðandi stöðu árið 2004 en lækkaði sektina í 130 milljónir. Félagið vildi ekki una þessu og stefndi Samkeppniseftirlitinu fyrir héraðsdóm Reykjavíkur og krafðist þess að ákvörðun þess yrði felld úr gildi. Héraðsdómur féllst ekki á það.

Hæstiréttur kvað upp úrskurð sinn í dag og taldi ekki að fargjöld til Lundúna hefðu verið óeðlilega ódýr. Hins vegar hefði Icelandair undirboðið keppinaut sinn með fargjöldum til Kaupmannahafnar og er því félaginu gert að greiða 80 milljóna króna sekt í stað 130 milljóna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku