Íbúðarhús rýmd á Ísafirði

Á Ísafirði í dag. Mynd: Jóhannes Jónsson

Tvær fjölskyldur á Seljalandsvegi á Ísafirði þurftu að yfirgefa heimili sín á ellefta tímanum í kvöld vegna snjóflóðahættu. Húsin eru nálægt iðnaðarsvæði í bænum sem rýmt var í dag. Mikil snjókoma er á Ísafirði og nánast ekkert skyggni. Fólkið sem rýma þurfti hús sín gistir hjá ættingjum í nótt.

Lögreglan á Ísafirði biður fólk að halda sig innandyra og vera ekki á ferli nema nauðsyn krefji. Aftakaveðri er spáð á Vestfjörðum í nótt, og raunar á öllu svæðinu milli Snæfellsness og Stranda. Nánast allir vegir í þessum landshluta eru ófærir.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Vestfirðir

Tilkynna um bilaða upptöku