Hvirfilbylur á stærð við jörðina

NASA hefur birt upptöku af hvirfilbyl á sólinni. Hvirfilbylurinn er talinn hafa verið á stærð við jörðina og var þúsund sinnum öflugri en kraftmestu hvirfilbyljir á jörðunni.

Öflugustu hvirfilbyljir á jörðu ná 135 metra hraða á sekúndu. Vindhraðinn í hvirfilbylnum á sólinni er hins vegar talinn hafa náð allt að 135 kílómetra hraða á sekúndu að því er Terry Kucera sagði í viðtali við Fox-fréttastofuna. Kucera er vísindamaður við Goddard-geimferðastofnunina í Bandaríkjunum. 

Hvirfilbylurinn sem NASA myndaði á sólinni stóð yfir í þrjátíu klukkustundir, hófst 7. febrúar og lauk rúmum sólarhring síðar, 8. febrúar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku