Hvaða lið mætast í bikarúrslitum?

Þorgerður Anna Atladóttir og félagar í Val taka á móti Stjörnunni í kvöld.

Það kemur í ljós í kvöld hvaða lið mætast í úrstlium bikarkeppni kvenna í handbolta. Undanúrslitaleikirnir fara fram í kvöld, en þá mætast ÍBV og FH í Vestmannaeyjum klukkan 19.15 og Valur tekur svo á móti Stjörnunni klukkan 20.00 að Hlíðarenda.

Valskonur geta komist í bikarúrslit þriðja árið í röð, en 2010 og 2011 tapaði Valur í úrslitum fyrir Fram. Úrslitaleikur bikarkeppninnar fer svo fram í Laugardalshöll og verður hann leikinn laugardaginn 25. febrúar. Úrslitaleikurinn verður í beinni útsendingu RÚV.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku