Hústökumenn á Háaleitisbraut

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að Háaleitisbraut í gærkvöld. Þar hafði karlmaður komið heim í íbúð sína eftir nokkra fjarveru og fundið tvo ókunnuga menn. Þeir höfðu hreiðrað þar um sig án heimildar. Lögreglan fann muni sem taldir eru vera þýfi og handtók mennina.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku