Prenta frétt

Senda frétt

Húsavík í topp tíu

Húsavík er á meðal tíu bestu hvalaskoðunarstaða heims, að áliti blaðamanns Daily Telegraph. Blaðið birtir í ferðablaði sínu í dag grein eftir Victoriu Harwood blaðamann þar sem hún tekur út 10 bestu hvalaskoðunarstaðina. Þar er Húsavík á meðal staða eins og Lofoten í Noregi og Vancouver eyju í Kanada. Sagt er að í Skjálfanda flóa sé hægt að sjá ýmsar hvalategundir reglulega og þá fær Hvalasafnið góða dóma.

 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta