Hulunni svipt af dómnefnd
Fyrst birt: 15.02.2012 14:03, Síðast uppfært: 15.02.2012 14:28

Nöfn þeirra sem sátu í dómnefnd í úrslitum og undanúrslitum Söngvakeppni Sjónvarpsins hafa verið gerð opinber.
Í dómnefndinni sátu: Kristín Björg Þorsteinsdóttir, fyrrverandi dagskrárgerðarmaður, formaður dómnefndar; Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, menntaskólanemi, söngnemi og söngkona; Davíð Olgeirsson, söngvari og lagahöfundur; Kristjana Stefánsdóttir söngkona; Magnús Kjartansson tónlistarmaður; Logi Pedro Stefánsson, bassaleikari hljómsveitarinnar Retro Stefson; og Þórdís Schram, dansari og söngkona.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

3/4 horfðu á Söngvakeppnina
Sigurvegari Söngvakeppninnar





