Hugmyndir um nýtt lón við Kárahnjúka

Kárahnjúkavirkjun.

Landsvirkjun gæti aukið raforkuframleiðslu sína um fimm prósent með því að nýta affallsvatn Kárahnjúkavirkjunar. Til þess þyrfti að búa til nýtt lón fyrir neðan Hálslón.

Hálslón Kárahnjúkavirkjunar fyllist gjarnan um miðjan ágúst og um leið byrjar vatn að flæða um yfirfall og niður í Jökulsá á Dal. Það stendur í allt að tvo mánuði og á meðan tapast gríðarleg orka því yfirfallsvatn fer framhjá stöðvarhúsinu í Fljótsdal. Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar, segir að í meðalári renni 970 milljón rúmmetrar af vatni um yfirfall Hálslóns. Það er næstum helmingur þess vatns sem hægt er að geyma í Hálslóni. Ástæða þess hve mikið vatn fer til spillis er að hönnun virkjunarinnar miðar við þurrustu ár og að þá sé hægt að fullnýta það vatn sem fellur til.

Sú hugmynd hefur verið rædd að gera nýtt lón rétt neðan Hálslóns á Brúaraurum undan Hafrahvammagljúfrum. Þar mætti geyma yfirfallsvatnið og dæla því aftur upp í Hálslón að vetri til þegar fer að lækka í lóninu. Ef allt yfirfallsvatn nýttist niðri í stöðvarhúsinu í Fljótsdal væri hægt að framleiða með því 1.280 gígavattstundir á ári sem er tíundi hluti allrar raforkuframleiðslu Landsvirkjunar. Tæknilega yrði þó aðeins hægt að nýta um helming vatnsins. Þar skiptir máli að ekki er hægt að fjölga afvélum í Fljótsdalsstöð vegna þess að löng aðrennslisrörin bera ekki aukið rennsli. Hinsvegar gæti uppdæling í Hálsón gert það að verkum að aflvélar í Fljótsdalsstöð gæti keyrt á auknu afli yfir veturinn. Rétt er að taka fram að þetta er á algjöru hugmyndastigi og margra ára undirbúning þyrfi áður en nokkuð yrði ákveðið um framkvæmdir.

Landvirkjun vill einnig bæta nýtingu vatns í Búrfellsvirkjun og á Sultartanga. Lengst er undirbúningur komin við stækkun Búrfellsvirkjunar en þar er fyrirhugað að byggja nýtt 70 megavatta stöðvarhús. Þannig mætti nýta meira en helming þess vatns sem nú rennur framhjá Búrfellsvirkjun og framleiða 210 gígavattstundir aukalega en það myndi auka raforkuframleiðslu Landsvikjunar um 1,6%. 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Austurland

Tilkynna um bilaða upptöku