Hugðust selja íslenska konu

Fjórir eða fimm Íslendingar voru handteknir í Amsterdam í síðustu viku grunaðir um tilraun til mansals, fíkniefnabrot og önnur brot sem tengjast með mismiklum hætti. Þetta staðfestir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar sem aðstoðað hefur hollensku lögregluna við rannsóknina
Fram kemur í DV í dag að mennirnir séu meðal annars grunaður um að hafa ætlað að selja íslenska konu í vændi til Brasilíu. Hún hafi verið ginnt til Amsterdam á fölskum forsendum, dvalið þar í íbúð sem hópur Íslendinga hélt til í. Hún hafi síðan komist að því að senda ætti hana í vændishús í Brasilíu. Konunni tókst að sleppa frá fólkinu og hafði samband við lögreglu sem handtók fólkið í framhaldinu. Í samtalinu við DV segist konan óttast um sinn hag en hyggist bera vitni gegn fólkinu. Ekki er vitað til þess að áður hafi verið reynt að selja íslenska konu í vændi í útlöndum.
DV segir í umfjöllun sinni að einn hinna handteknu sé Steinar Aubertsson en hann var eftirlýstur að alþjóðalögreglunni Interpol fyrr í sumar í tengslum við fíkniefnasmygl hér á landi og er enn. Karl Steinar segist ekki geta staðfest að Steinar sé einn hinna handteknu en segir málin tvö ekki tengjast.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













