Huang Nubo mjög áhugasamur

Bæjarstjóri Norðurþings segir kínverska fjárfestinn Huang Nubo mjög áhugasaman um að halda áfram undirbúningi að fjárfestingum á Norðausturlandi. Viðræður við hann í Peking snúist um hvernig koma megi hugmyndum hans í framkvæmd.
Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings átti fund með Huang Nubo og hans fólki í Peking í dag. Halda á fleiri fundi næstu þrjá daga. Bergur segir greinilegt að áhugi Huangs á fjárfestingum hér hafi ekkert minnkað. Mikilvægt sé að finna út hvernig hægt sé að haga málum þannig að Huang geti fylgt því eftir.
Eins og fram hefur komið eru uppi hugmyndir að Norðurþing og fleiri sveitarfélög eignist land á Grímsstöðum og leigi það kínverska fjárfestinum. Bergur segir að hugsanleg aðkoma hans að fjármögnun hafi ekkert verið rædd. En þessi ferð sé farin í samráði við iðnaðarráðuneytið. Viðræðurnar við Huang Nubo taki mið af erindi hans hjá ívilnunarnefnd ráðuneytisins og umsókn hans um langtímaleigu á íslensku landi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Huang fær ekki Grímsstaði
Ráðuneyti leiðbeini Huang Nubo
Innanríkisráðherra um Huang Nubo





